Íslenski boltinn

Pepsi-spáin 2017: KA hafnar í 7. sæti

Íþróttadeild 365 skrifar
KA-menn fagna marki á Leiknisvelli síðasta sumar.
KA-menn fagna marki á Leiknisvelli síðasta sumar. vísir/stefán
Íþróttadeild 365 telur niður í Pepsi-deild karla með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 30. apríl en þar á FH titil að verja eftir að hafa orðið meistari í áttunda sinn í sögu félagsins í fyrra.

Íþróttadeild 365 spáir KA 7. sæti deildarinnar. KA-menn leika nú í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2004. KA hefur tjaldað miklu til á undanförnum árum og komst loks um deild í fyrra. KA hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari, árið 1989.

Þjálfari KA er Srdjan Tufegdzic. Hann hefur verið hjá KA frá 2006, fyrst sem leikmaður, svo þjálfari í yngri flokkunum, aðstoðarþjálfari og loks aðalþjálfari. Túfa, eins og hann er jafnan kallaður, tók við KA þegar Bjarni Jóhannsson hætti í ágúst 2015 og kom liðinu svo upp um deild árið eftir. Hann framlengdi nýlega samning sinn við KA um tvö ár.

Mögulegt byrjunarlið
KA-menn eiga afskaplega erfiða byrjun á Íslandsmótinu. Í fyrstu fimm umferðunum fara þeir á Kópavogsvöll, í Kaplakrika og á Samsung-völlinn og mæta þar þremur af sterkustu liðum deildarinnar.

KA-menn byrja á útileikjum gegn Breiðabliki og FH en fá svo Fjölni í heimsókn í fyrsta heimaleiknum 14. maí. Búast má við mikilli stemmningu á þeim leik enda fyrsti heimaleikur KA í efstu deild í 13 ár.

KA sækir svo Stjörnuna heim áður en liðið tekur á móti Víkingi R. í 5. umferðinni.

1. maí: Breiðablik - KA, Kópavogsvöllur

8. maí: FH - KA, Kaplakriki

14. maí: KA - Fjölnir, Akureyrarvöllur

21. maí: Stjarnan - KA, Samsung-völlur

27. maí: KA - Víkingur R., Akureyrarvöllur

Þrír sem KA treystir á
Guðmann Þórisson, Almarr Ormarsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson.vísir/stefán/eyþór
Guðmann Þórisson: Margir ráku upp stór augu þegar Guðmann fór frá Íslandsmeisturum FH til KA korteri í mót í fyrra. Guðmann átti gott sumar í vörn KA sem fékk aðeins á sig 16 mörk í Inkasso-deildinni. Guðmann er öflugur og grimmur miðvörður sem átti tvö frábær tímabil með FH áður en hann fór til Mjällby í Svíþjóð.

Almarr Ormarsson: Sneri aftur til uppeldisfélagsins í fyrra eftir góð ár hjá Reykjavíkurfélögunum Fram og KR í Pepsi-deildinni. Almarr býr yfir mikilli reynslu og getur hjálpað KA í mörgum stöðum. Flinkur spilari sem getur skorað mörk og verður afar mikilvægur fyrir KA í sumar.

Hallgrímur Mar Steingrímsson: Húsvíkingurinn sneri aftur til KA í fyrra eftir eitt tímabil hjá Víkingi R. þar sem hann sýndi góða takta. Afskaplega hæfileikaríkur leikmaður sem getur bæði skorað og skapað fyrir aðra. KA-menn treysta á mörk og stoðsendingar frá Hallgrími í sumar.

NýstirniðÁsgeir Sigurgeirsson sló í gegn í Inkasso-deildinni í fyrra þar sem hann skoraði átta mörk í 17 leikjum, þ.á.m. markið sem tryggði KA sæti í Pepsi-deildinni.

Ásgeir byrjaði ungur að spila með Völsungi og fór svo til Stabæk í Noregi 2014. Húsvíkingurinn var lánaður til KA í fyrra og félagið keypti hann svo eftir tímabilið. Getur leikið allar stöður fremst á vellinum og er duglegur að skora.

Markaðurinn
Danski framherjinn Emil Lyng kom frá Silkeborg.mynd/ka
Komnir:

Ásgeir Sigurgeirsson frá Stabæk

Darko Bulatovic frá Cukaricki

Emil Lyng frá Silkeborg

Kristófer Páll Viðarsson frá Víkingi R. (Á láni)

Steinþór Freyr Þorsteinsson frá Sandnes Ulf

Farnir:

Juraj Grizlej í Keflavík

Kristján Freyr Óðinsson í Dalvík/Reyni

Pétur Heiðar Kristjánsson í Magna

Orri Gústafsson fluttur erlendis

KA-menn hafa verið rólegri á leikmannamarkaðinum en búist var við. Þeir keyptu Ásgeir eftir frábært tímabil í fyrra og fengu Kristófer Pál á láni frá Víkingi R. Efnilegur strákur sem skoraði 10 mörk fyrir Leikni F. í Inkasso-deildinni í fyrra.

Steinþór Freyr Þorsteinsson er kominn heim eftir nokkurra ára dvöl í atvinnumennsku og hann kemur til með að fylla skarðið sem Juraj Grizlej skildi eftir sig. Steinþór var gríðarlega öflugur með Stjörnunni áður en hann fór út, þá sérstaklega á gervigrasinu í Garðabæ.

Darko Bulatovic er vinstri bakvörður frá Svartfjallalandi og Emil Lyng er stór og stæðilegur Dani sem á að létta undir með Elfari Árna Aðalsteinssyni í framlínu KA.

Hvað segir Hjörvar?
vísir/pjetur
„Mér líst ágætlega á KA en það vantar markaskorara í liðið,“ segir Hjörvar Hafliðason, einn sérfræðinga Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport.

„Ég vonast til að Ásgeir Sigurgeirsson verði einn af efnilegustu leikmönnum deildarinnar. Þeir fengu líka mjög reynslumikinn mann í Steinþóri Frey. Við munum hvernig hann gjörbreytti Stjörnunni þegar hann fór þangað á sínum tíma.“

Hjörvar hefur mestar áhyggjur af markvörslunni hjá KA í sumar.

„Stóra spurningin fyrir mig er markvarslan. Srdjan Rajkovic stóð sig mjög vel í fyrra en var í erfiðleikum síðast þegar hann var í Pepsi-deildinni með Þór. Ef hann spilar eins og í fyrra verður þetta ekki vesen.“

Að lokum
Túfa stýrir liði í fyrsta sinn í efstu deild í sumar.vísir/stefán
Það sem við vitum um KA er ... að liðið er vel skipulagt og fær fá mörk á sig. KA fékk aðeins 16 mörk á sig í 22 leikjum í Inkasso-deildinni í fyrra og einungis fjögur mörk í sjö leikjum í Lengjubikarnum í vetur. KA er með líkamlega sterka miðju og gott úrval af kantmönnum og sóknarsinnuðum miðjumönnum en vantar hreinræktaðan markaskorara. Metnaðurinn hjá KA er mikill og það verður væntanlega stemmning í kringum liðið, enda að spila í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2004.

Spurningamerkin eru ... hvernig standa KA-menn sig á stóra sviðinu eftir öll þessi ár í næstefstu deild? Þjálfarinn er í miklum metum fyrir norðan en hefur enga reynslu úr efstu deild, hvorki sem leikmaður né þjálfari. Liðið er með spennandi leikmenn fram á við en er ekki með framherja sem þeir geta treyst á að skori 10 mörk eða meira. Elfar Árni Aðalsteinsson er öflugur leikmaður og gerir mikið fyrir liðið en hefur aldrei skorað meira en fimm mörk á einu tímabili í Pepsi-deildinni. Rajkovic var frábær í markinu í fyrra en var aðallega í því að gefa mörk þegar hann lék síðast í Pepsi-deildinni. Eru bakverðirnir nógu sterkir fyrir Pepsi-deildina?



Það mæðir mikið á Elfari Árna.vísir/stefán
Í besta falli: Kemst KA sómasamlega í gegnum erfiða byrjun á mótinu og býr til grunn til að byggja á í framhaldinu. Varnarleikurinn heldur og Rajkovic spilar eins og hann gerði í fyrra. Steinþór Freyr sýnir sömu takta og hann gerði með Stjörnunni á sínum tíma og Ásgeir blómstrar í deild þeirra bestu. Elfar Árni finnur sig loks sem markaskorari í efstu deild og liðsstyrkurinn að utan reynist góður. Þá getur KA endað í efri hlutanum.

Í versta falli: Ná KA-menn aldrei að vinna sig út úr erfiðri byrjun á mótinu og þurfa að berjast í kjallaranum. 2013 útgáfan af Rajkovic stendur í markinu og liðið nær ekki að skora nógu mikið af mörkum. Það er talsverð pressa á KA þótt það sé nýliði og hún gæti lagst þungt á liðið, sérstaklega ef það fer illa af stað eins og möguleiki er á.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×