Handbolti

Kristianstad áfram í undanúrslit eftir 22 marka sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Freyr nýtti öll skotin sín í leiknum.
Arnar Freyr nýtti öll skotin sín í leiknum. vísir/hanna
Íslendingaliðið Kristianstad er komið áfram í undanúrslit um sænska meistaratitilinn eftir risasigur á Guif, 39-17, í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum í kvöld.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði fjögur mörk úr jafn mörgum skotum á línunni hjá Kristianstad sem var 18-6 yfir í hálfleik.

Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar og Gunnar Steinn Jónsson var með eitt mark og tvær stoðsendingar.

Kristianstad hafði mikla yfirburði í einvíginu við Guif og vann leikina þrjá með samtals 39 mörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×