Körfubolti

Haukur Helgi með 13 stig í þriðja sigri Rouen í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi og félagar hafa klifið upp töfluna á undanförnum vikum.
Haukur Helgi og félagar hafa klifið upp töfluna á undanförnum vikum. vísir/ernir
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Rouen unnu sinn þriðja leik í röð í frönsku B-deildinni þegar þeir lögðu Roanne að velli, 94-82, í kvöld.

Haukur Helgi skilaði sínu að vanda. Íslenski landsliðsmaðurinn var með 13 stig, tvö fráköst og sex stoðsendingar.

Haukur Helgi hitti úr öllum fjórum skotum sínum inni í teig og setti niður einn þrist í fimm tilraunum.

Haukur Helgi var með frábæra plús mínus tölfræði en Rouen vann þær mínútur sem hann var inni á vellinum með 17 stigum.

Rouen er í 10. sæti deildarinnar og á góða möguleika á að komast í úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×