Erlent

Ætla að standa við „heimskulegt“ samkomulag

Samúel Karl Ólason skrifar
Mike Pence og Malcolm Turnbull, forsætisráðherra Ástralíu.
Mike Pence og Malcolm Turnbull, forsætisráðherra Ástralíu. Vísir/EPA
Bandaríkin munu standa við samkomulag við Ástralíu sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur kallað heimskulegt. Þessu hét Mike Pence, varaforseti, í heimsókn sinni til Ástralíu. Samkomulagið var samþykkt af ríkisstjórn Barack Obama og felur í sér að Bandaríkin taki á móti allt að 1.250 hælisleitendum frá Ástralíu.

Yfirvöld í Ástralíu hafa þvertekið fyrir að veita fólkinu hæli, en að mestu er um að ræða karlmenn frá Íran, Afganistan og Írak, samkvæmt BBC. Hælisleitendunum hefur verið haldið í sérstökum og mjög svo umdeildum búðum í Naúrú og Papúa Nýju-Gíneu.

Í staðinn mun Ástralía taka á móti fólki frá Gvatemala, Hondúras og El Salvador sem hafa sótt um hæli í Bandaríkjunum.

Sjá einnig: Trump reiður út í forsætisráðherra Ástralíu

Pence sagði að samningurinn yrði heiðraður en ekki dáður. Þeir hælisleitendur sem um ræðir munu þurfa að ganga í gegnum stíft rannsóknarferli áður en þeim verður hleypt inn í Bandaríkin, samkvæmt Hvíta húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×