Golf

Valdís í 38-48. sæti fyrir lokahringinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Fugl á átjándu kom Valdísi aftur á parið.
Fugl á átjándu kom Valdísi aftur á parið. mynd/gsí
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, deilir 38. sæti ásamt níu öðrum kylfingum fyrir lokahringinn á Estrella Damm Mediterrean Ladies Open mótinu í golfi sem fer fram á Spáni þessa helgina.

Mótið er hluti af LET-mótaröðinni, Evrópmótaröðinni í golfi í kvennaflokki en þetta er næst sterkasta atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum á eftir LPGA.

Valdís byrjaði mótið af krafti og var á þremur höggum undir pari eftir fyrsta dag en tapaði einu höggi í gær og komst því í gegnum niðurskurðinn á tveimur höggum undir pari.

Dagurinn í dag byrjaði ekki bærilega því annan daginn í röð fékk Valdís skolla á fyrstu holu og fylgdi hún því eftir með skolla á þriðju. Hún náði að laga stöðuna með tveimur fuglum og einum skolla og var á höggi yfir pari að níu holum loknum.

Hóf hún seinni níu holurnar á fjórum pörum í röð en tveir skollar á næstu fjórum holum þýddi að hún var komin á þrjú högg yfir parið á deginum og yfir par á mótinu.

Fugl á síðustu holunni þýddi hinsvegar að hún kom í hús á tveimur höggum yfir pari á deginum og á parinu á mótinu en þetta var annar dagurinn í röð sem Valdís fær fugl á átjándu holu.

Valdís fær tækifæri til að komast upp töfluna á lokahringnum á morgun en hún er þegar þetta er skrifað þrettán höggum á eftir efsta kylfing, Melissu Reid, sem hefur farið á kostum á þriðja hring á átta höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×