Fótbolti

Sonur Ronaldo farinn að sýna kunnuglega aukaspyrnutakta | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ronaldo kom Madrídingum á bragðið.
Ronaldo kom Madrídingum á bragðið. vísir/getty
Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður heimsins, birti í morgun skemmtilegt myndband á Instagram-síðu sinni frá leik með syni sínum þar sem hann sýnir takta sem pabbi hans hefur gert fræga við aukaspyrnur.

Cristiano Jr. sem er aðeins sjö ára gamall fær þá tækifæri til að taka aukaspyrnu og er óhætt að segja að það sé kunnuglegir taktar hjá stráknum.

Lífið leikur við pabba hans þessa dagana sem leikur með Real Madrid en Cristiano var mættur til að fylgjast með syninum þrátt fyrir þétta leikjadagskrá framundan.

Framundan um helgina er leikur gegn Barcelona og handan við hornið eru leikir í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu þar sem Real mætir nágrönnum sínum í Atletico Madrid.

Það verða miklar væntingar gerðar til stráksins hans og er hann strax farinn að vekja athygli fyrir takta sína inn á vellinum.

so proud of my little man what a goal siii

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×