Körfubolti

Meiðsli kosta Blake úrslitakeppnina á nýjan leik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Blake verður í borgaralegum klæðum á bekknum það sem eftir lifir úrslitakeppninnar.
Blake verður í borgaralegum klæðum á bekknum það sem eftir lifir úrslitakeppninnar. Vísir/Getty
Los Angeles Clippers sendi frá sér tilkynningu í dag þess efnis að stjörnuleikmaður liðsins, Blake Griffin, yrði ekki meira með í úrslitakeppninni vegna meiðsla eftir að hafa farið meiddur af velli í leiknum gegn Utah Jazz.

Clippers er búið að snúa stöðunni sér í hag með tveimur sigurleikjum í röð gegn liði Utah sem hefur saknað hæðar og krafts Rudy Gobert inn í teignum en Utah vann fyrsta leik liðanna í Staples Center.

Nú hefur meiðsladraugurinn gert var við sig í borg englanna en það var staðfest að meiðsli sem Griffin varð fyrir í gær á stórutá þýða að hann verði ekki með liðinu það sem eftir lifir úrslitakeppninnar.

Er þetta annað árið í röð sem Griffin missir af leikjum í úrslitakeppninni vegna meiðsla en hann var með 21,6 stig að meðaltali í leik í vetur ásamt því að taka 8,1 frákast og gefa 4,9 stoðsendingu í leik.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×