Fótbolti

Anna Björk opnaði markareikninginn í jafntefli

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Anna Björk í leik með Stjörnunni á sínum tíma.
Anna Björk í leik með Stjörnunni á sínum tíma. Vísir/Valli
Anna Björk Kristjánsdóttir skoraði mark Bunkeflo í 1-1 jafntefli gegn Pitea í sænsku úrvalsdeildinni í dag en það mátti engu muna að mark Önnu hefði verið sigurmark leiksins.

Anna sem var að leika annan leik sinn fyrir félagið hóf leikinn í miðri vörn Bunkeflo og kom þeim yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Var þetta fyrsta mark liðsins í deildinni í vetur eftir 0-3 tap í fyrsta leik gegn Linkopings.

Það virtist ætla að vera sigurmarkið þar sem staðan var enn 1-0 að venjulegum leiktíma loknum en Lotta Okvist náði að jafna metin fyrir Pitea á 93. mínútu leiksins og gerði það að verkum að liðin skyldu jöfn.

Voru þetta fyrstu stig beggja liða en þau sitja í 8. og 9. sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru búnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×