Innlent

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í vikunni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Göngin verða lokuð vegna árlegra vorverka.
Göngin verða lokuð vegna árlegra vorverka. Fréttablaðið/Pjetur
Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur í þessari viku, frá mánudeginum og til fimmtudags, vegna viðhalds og hreingerninga. Þetta kemur fram á heimasíðu Spalar.

Vakin er sérstök athygli á því að göngunum verður lokað kl. 22 að kvöldi mánudagsins 24. apríl, en á miðnætti næstu þrjú kvöld sem fylgja á eftir.

Lokað verður sem hér segir í þetta sinn:

Frá kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl til kl. 6 að morgni þriðjudags 25. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×