Enski boltinn

Zlatan ætlar ekki að gefast upp

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan er hér svekktur.
Zlatan er hér svekktur. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Man. Utd, ætlar að koma sterkari til baka eftir meiðslin sem hann varð fyrir á dögunum.

Zlatan meiddist illa á hné í Evrópudeildinni og mun ekki spila meira á þessari leiktíð. Mikið áfall fyrir félagið sem og leikmanninn.

Hann er búinn að skora 28 mörk fyrir United í vetur og er alls óvíst hvenær hann getur spilað fótbolta á nýjan leik.

„Ég verð frá í einhvern tíma en uppgjöf er ekki í myndinni. Ég mun komast í gegnum þetta eins og allt annað og koma sterkari til baka,“ skrifaði Zlatan á Instagram.

„Eitt er á hreinu og það er að ég mun ákveða hvenær ég hætti. Ég læt ekki eitthvað annað stjórna því.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×