Enski boltinn

Mourinho: Komnir með nýjan leikmann í Martial

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Anthony Martial skoraði eftir smá eyðimerkurgöngu.
Anthony Martial skoraði eftir smá eyðimerkurgöngu. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, var heldur betur ánægður með að Anthony Martial vaknaði til lífsins á Turf Moor í gær og skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 sigri á Burnley.

Martial batt endahnútinn á frábæra skyndisókn sem hann hóf sjálfur með því að reykspóla frá Joey Barton en hann kom boltanum í netið framhjá Tom Heaton eftir sendingu frá Ander Herrera.

Frakkinn var fyrir leikinn ekki búinn að skora í tíu leikjum í röð í öllum keppnum en Mourinho vonast nú til að Martial geti haldið svona áfram og hjálpað liðinu á erfiðum lokasprett tímabilsins.

„Hann verður að sýna mér svona hluti. Hann verður að skilja að þetta er það sem við þurfum að fá frá honum. Þetta er samt ekki bara fyrir okkur heldur líka fyrir hann,“ sagði Mourinho.

„Ef Martial vill verða mjög einstakur leikmaður sem hann getur orðið þá verður hann að stefna í rétta átt og sýna hungur og rétt viðhorf. Við erum mjög ánægðir því erum búnir að fá nýjan mann fyrir lok tímabilsins,“ sagði José Mourinho.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×