Körfubolti

Westbrook reifst við blaðamann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Russ var ekki í neinu stuði eftir leikinn í gær.
Russ var ekki í neinu stuði eftir leikinn í gær. vísir/getty
Russell Westbrook, ofurstjarna Oklahoma City Thunder, var ekki sáttur við spurningu blaðamanns á blaðamannafundi Oklahoma í gær.

Blaðamaðurinn vildi fá svar frá Steven Adams um af hverju liðið gæfi svona mikið eftir er Westbrook færi á bekkinn. Oklahoma hafði þá tapað í jöfnum slag gegn Houston.

Westbrook leyfði Adams ekki að svara spurningunni heldur greip inn í. Bað hann um að vera ekki að skipta liðinu upp. Þeir væru allir í þessu saman.

Blaðamaðurinn kunni ekki að meta þessa takta Westbrook og gekk eftir svari frá Adams sem virtist ekki hafa neinn áhuga á að svara.

Westbrook vildi fá aðra spurningu úr sal en það gekk illa því blaðamaðurinn vildi fá svar við sinni spurningu og neitaði að gefa hljóðnemann eftir.

Þetta er stórskemmtilegt eins og sjá má hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×