Íslenski boltinn

900 miðar seldir á fyrsta klukkutímanum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hér fagna Íslendingar sigurmarkinu ótrúlega gegn Finnlandi.
Hér fagna Íslendingar sigurmarkinu ótrúlega gegn Finnlandi. vísir/getty
Miðasala fyrir leik Finnlands og Íslands í undankeppni HM 2018 fer vel af stað en á fyrsta klukkutímanum seldust 900 miðar. Þetta staðfesti Klara Bjartmarz í samtali við Vísi í dag.

Leikurinn fer fram í Tampere þann 2. september en leikvangurinn þar tekur 16.800 manns í sæti. 1300 miðar eru í boði fyrir stuðningsmenn Íslands.

Á sama tíma fer fram EM í körfubolta í Finnlandi og skýrir það að hluta mikinn áhuga Íslendinga á leiknum. Fyrr um daginn eigast við Frakkland og Ísland í Helsinki.

Ísland vann dramatískan 3-2 sigur á Finnlandi þegar liðin mættust á Laugardalsvelli í haust.


Tengdar fréttir

Var markið raunverulegt hneyksli?

Hans Backe þjálfari finnska landsliðsins í fótbolta segir sigurmark Íslands í landsleik þjóðanna á fimmtudaginn hafa verið hneyksli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×