Innlent

Segja sameiningu soga þjónustu til Siglufjarðar

Sveinn Arnarsson skrifar
Grunnskólinn í Ólafsfirði. Til stendur að flytja yngsta stig skólans til Siglufjarðar. Foreldrar eru ekki sáttir.
Grunnskólinn í Ólafsfirði. Til stendur að flytja yngsta stig skólans til Siglufjarðar. Foreldrar eru ekki sáttir. Vísir/Sveinn
Sextíu nemendur grunnskólans í Ólafsfirði mættu ekki til kennslu í gær vegna mótmæla foreldra þeirra. Til stendur að flytja yngsta stig grunnskólans til Siglufjarðar en foreldrar í Ólafsfirði mótmæla því harðlega.

„Þegar sveitarfélögin sameinuðust í Fjallabyggð var talað um að jafnvægi þyrfti að vera milli byggðakjarnanna. Mikilvægt væri að ekki hallaði á neinn aðila. Nú er tilfinningin sú að verið sé að þröngva þessu í gegn hvort sem okkur líkar það betur eða verr,“ segir Hildur Gyða Ríkharðsdóttir, móðir í Ólafsfirði.

Margir íbúar Ólafsfjarðar eru ósáttir við að Siglufjörður virðist draga að sér alla opinbera þjónustu á kostnað Ólafsfjarðar. Við sameiningu sveitarfélaganna var áhersla lögð á að styrkja bæði byggðarlögin en Ólafsfirðingar telja það hafa gleymst.

„Grunnskóli er hjarta bæjarins og fólk velur sér búsetu eftir því hvernig þjónustan er á hverjum stað. Eftir stendur fátt sem við höfum og margt flutt yfir á Siglufjörð. Ef fram heldur sem horfir mun fólk aðeins flytjast til Siglufjarðar þar sem þjónustan er. Það er mjög alvarlegt,“ bætir Hildur Gyða við.

Í nýrri skólastefnu Fjallabyggðar er lagt til að yngri hluti grunnskólans verði á Siglufirði en eldri hlutinn í Ólafsfirði. Bæjarfélagið á við það vandamál að stríða að í báðum byggðarlögunum eru fullgerðir leikskólar með allt til alls en einvörðungu um 200 grunnskólabörn í það heila. Til að nýta skólahúsnæðið þarf því að skipta starfinu milli skólanna.

Einnig hefur bæjarfélagið lagt mikla áherslu á að blanda börnum beggja byggðalaga saman.

Jón Valgeir Baldursson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Fjallabyggð, var sá eini sem gagnrýndi þennan ráðahag. „Engin umræða hefur farið fram um málið og íbúar hafa ekki verið spurðir álits á þessum gjörningi. Því gat ég ekki samþykkt þetta,“ segir Jón Valgeir.

Ekki náðist í Steinunni Maríu Sveinsdóttur, formann byggðaráðs Fjallabyggðar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×