Bílar

Geggjuð tækni franskrar mótorhjólakonu

Finnur Thorlacius skrifar
Sarah Lezito í kunnuglegum aðstæðum.
Sarah Lezito í kunnuglegum aðstæðum.
Taktarnir sem þessi 23 ára franska mótorhjólakona eru svo magnaðir að vafalaust er leit að þeim sem hefur meiri tök á ökutæki sínu, af hvoru kyninu sem er. Konan heitir Sarah Lezito og er nánast óþekkt þó svo hún hafi tekið að sér að leika Scarlett Johansen í áhættuatriði í myndinni Avengers Part Two þar sem hún ók mótorhjóli af mikilli list.

Þegar Sarah Lezito var 13 ára var hún strax búin að ná gríðarlegum tökum á fjórhjólum og mótorhjólum og kunni hin ýmsu trix á þeim í ætt við það sem hér sést í myndskeiðinu. Allar götur síðan þá hefur hæfni hennar aukist og er hún nú einn lunknasti mótorhjólamaður veraldar og þá bæði kynin talin með. Eins og stendur er hennar aðalfarkostur Kawasaki ZX-6R hjól og óþreytt sýnir hún hæfni sína á því fyrir sívaxandi hóp af aðdáendum.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×