Lífið

Hugleikur í epísku danseinvígi við lagið Paper með Svölu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hulli stóð sig nokkuð vel.
Hulli stóð sig nokkuð vel.
Grínistinn Hugleikur fór á dögunum í ódauðlegt danseinvígi á móti Jonathan Duffy.

Báðir áttu þeir að sýna danshæfileika sína við lagið Paper með Svölu Björgvinsdóttir en hún fer fyrir Íslands hönd í Eurovision sem fram fer í Kænugarði í maí.

Svala stígur á sviðið 9. maí á fyrra undanúrslitakvöldinu.

Einvígið sjálft birtist á Facebook-síðunni Icetralia og er hreint út sagt stórkostlegt að sjá þessa tvo listamenn á dansgólfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×