Handbolti

Atli Ævar markahæstur þegar Sävehof knúði fram oddaleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli Ævar var öflugur á línunni.
Atli Ævar var öflugur á línunni. mynd/guif
Atli Ævar Ingólfsson og félagar í Sävehof jöfnuðu metin í einvíginu við Redbergslids með sigri, 26-18, í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum um sænska meistaratitilinn í kvöld.

Atli Ævar átti frábæran leik og var markahæstur í liði Sävehof. Akureyringurinn skoraði sjö mörk úr níu skotum af línunni.

Sävehof lenti 2-0 undir í einvíginu en hefur nú unnið tvo leiki í röð og jafnað metin í 2-2.

Oddaleikur liðanna fer fram á heimavelli Redbergslids á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×