Viðskipti innlent

Fleiri hross út þrátt fyrir styrkingu krónunnar

Sveinn Arnarsson skrifar
Daníel Jónsson á Landsmóti hestamannafélaga árið 2016. Margur gæðingurinn hefur farið utan sem hann hefur handleikið
Daníel Jónsson á Landsmóti hestamannafélaga árið 2016. Margur gæðingurinn hefur farið utan sem hann hefur handleikið
Þrátt fyrir styrkingu krónunnar hefur útfluttum hrossum fjölgað síðustu þrjú ár. Vel gengur að selja hross út að sögn útflytjenda en krónan klípur stóran hluta af hagnaðinum sem verður til.

Í fyrra voru tæp 1.500 hross flutt úr landi. Er það um 200 hrossa fjölgun frá árinu 2014. Mest selst til útlanda af hryssum en einnig eru um 500 geldingar fluttir út árlega. Graðhestum hefur síðan fjölgað rólega ár frá ári og um 233 graðhestar fóru utan á síðasta ári.

Hulda Gústafsdóttir, hestamaður og útflytjandi, segir hrossasölu til útlanda vera að ná fyrri styrk hvað fjölda hrossa varðar. Hins vegar er það svo að krónan leiki greinina grátt líkt og aðrar útflutningsgreinar.

„Við erum að sjá að frá því í byrjun árs 2016 hefur krónan styrkst um 20-25 prósent og það er gríðarlega erfitt að eiga við það. Þetta er auðvitað tekjutap sem því nemur og erfitt fyrir greinina í heild,“ segir Hulda. „Þeir sem eru harðir á því að fá sama verð fyrir hrossin sín og fyrir gengisstyrkingu eiga í miklum erfiðleikum með að selja hross.“

Hins vegar sýnir þetta að mati Huldu að íslenski hesturinn, fæddur, alinn og taminn hér á landi, er eftirsótt vara en mikilvægt sé að Íslendingar séu samkeppnishæfir í verði. „Það er gífurlegur fjöldi íslenskra hesta erlendis og ef við erum ekki samkeppnishæf þá töpum við slagnum mjög fljótt,“



Hestamennska skilar árlega milljörðum í ríkissjóð hvort sem um ræðir ferðaþjónustu, störf tengd tamningum og þjálfun, eða sem ferðaþjónustugrein. Sveinn Steinarsson, formaður fagráðs í hrossarækt, segir mikilvægt að gengið nái jafnvægi sem fyrst. „Ef fram heldur sem horfir gætu hlutir þróast á neikvæðan hátt,“ segir Sveinn. Mikil tækifæri eru í hestamennsku en verðin sem við fáum fyrir hross eru í lægri kantinum. Menn slá af verðum til að halda útflutningnum gangandi.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×