Fótbolti

Staða Granada versnar enn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sverrir fékk að líta gula spjaldið á 10. mínútu.
Sverrir fékk að líta gula spjaldið á 10. mínútu. vísir/getty
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í vörn Granada sem tapaði 0-2 fyrir Malaga á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta var fjórða tap Granada í röð en liðið er á leið niður í B-deildina. Granada er sjö stigum frá öruggu sæti og á aðeins fjóra leiki eftir.

Sandro Ramírez, fyrrverandi leikmaður Barcelona, skoraði bæði mörk Malaga sem er í 14. sæti deildarinnar.

Þetta var þriðji leikur Granada undir stjórn Tony Adams en liðið hefur tapað þeim öllum með markatölunni 7-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×