Fótbolti

Freyr: Höfum engu að tapa á móti Þýskalandi sem enginn vildi mæta

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Freyr Alexandersson var líklega ekki kátur með dráttinn í gær.
Freyr Alexandersson var líklega ekki kátur með dráttinn í gær. vísir/getty
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta var ekki beint heppið með drátt í gær þegar dregið var til undankeppni HM 2019 í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss. Mótið fer fram í Frakklandi.

Stelpurnar okkar voru í öðrum styrkleikaflokki og fengu Evrópu- og Ólympíumeistara Þýskalands með sér í riðil úr efsta styrkleikaflokknum. Þýskaland hefur um árabil verið eitt allra besta lið heims og eru áttfaldi Evrópumeistarar.

Auk Þýskalands eru í riðlinum Slóvenar, sem Ísland var með í riðli í undankeppni EM 2017, Tékkar og Færeyingar.

„Þýskaland er auðvitað lið sem enginn vildi fá en við lítum svo á að við höfum engu að tapa í þeim leik og það væri ágætt að vera sú þjóð sem sér til þess að Þýskaland fari ekki á HM,“ segir Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, í viðtali á heimasíðu KSÍ.

Íslenska liðið hefur aldrei komist á HM en leiðin þangað er mjög erfið. Aðeins efstu liðin í þeim sjö fimm liða riðlum sem dregið var í komast til Frakklands eftir tvö ár og fjögur bestu liðin í öðru sæti fara í umspil um síðasta lausa sæti Evrópu á heimsmeistaramótinu.

„Það eru alltaf möguleikar til staðar og okkar möguleiki er sá að verða eitt af þeim fjórum liðum sem er með bestan árangur í 2. sæti og við verðum að einbeita okkur að því til að komast í lokakeppni HM í Frakklandi,“ segir Freyr.

„Á sama tíma munum við láta Þjóðverja hafa verulega fyrir hlutunum í baráttunni um efsta sætið. Við þekkjum lið Slóveníu mjög vel og Tékkland er með gott lið sem er á uppleið,“ segir Freyr Alexandersson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×