Viðskipti innlent

WOW air tekur í notkun fyrstu Airbus A320NEO vélina

Birgir Olgeirsson skrifar
Þetta er þrettánda vél WOW air og verður vélin skráð undir heitinu TF-NEO.
Þetta er þrettánda vél WOW air og verður vélin skráð undir heitinu TF-NEO. Vísir
WOW air hefur fengið afhenta nýja flugvél beint frá verksmiðjum Airbus. Er þetta fyrsta Airbus A320neo flugvél félagsins sem leigð er frá bandarísku flugvélaleigunni Air Lease Corporation. Þetta er þrettánda vél WOW air og verður vélin skráð undir heitinu TF-NEO. Þetta kemur allt fram í fréttatilkynningu frá flugvélinu.

Þar segir einnig að umrædd vél hafi verið valin vegna framúrskarandi gæða, lágs rekstrarkostnaðar og eldsneytissparnaðar, sem getur numið allt að 15 til 20% og er því mjög umhverfisvæn.

„Við erum stolt af því að geta boðið upp á einn yngsta og háþróaðasta flotann þó víða væri leitað. Það gerir farþegum okkar kleift að ferðast vítt og breitt um heiminn á umhverfisvænan hátt á afar lágu verði,“ er haft eftir Skúla Mogensen, stofnanda og forstjóra WOW air.

Stutt er síðan WOW air tilkynnti um kaup á sjö nýjum Airbus flugvélum en í lok árs 2018 verða flugvélar WOW air orðnar 24 talsins sem notaðar verða í áframhaldandi stækkun félagsins í Norður-Ameríku og víðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×