Lífið

Mura Masa kemur fram á Airwaves

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mura Masa þykir nokkuð góður.
Mura Masa þykir nokkuð góður. vísir/getty
Hinn magnaði tónlistarmaður og pródúser MURA MASA mun koma fram á Iceland Airwaves í nóvember.  

Hann hefur á sínum stutta ferli unnið með nokkrum af stærstu listamönnum nútímans en þar má nefna A$AP Rocky, Charlie XCX, Desiigner og fleirum.  Mura Masa kom nýverið fram á Coachella tónlistarhátíðinni þar sem hann sló í gegn og var að margra mati með eitt flottasta atriði hátíðarinnar.

Ný plata er væntanleg á næstunni þar sem hann fær m.a. til liðs við sig Damon Albarn, Christine & The Queens, Nao, A$AP Rocky ofl.

Hér að neðan má sjá smell hans með A$AP Rocky - Lovesick.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×