Knarr Maritime ýtt úr vör Haraldur Guðmundsson skrifar 26. apríl 2017 14:34 Alfreð Túliníus, framkvæmdastjóri Nautic, Ingólfur Árnason framkvæmdatjóri Skaginn 3X, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra, Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Knarr Maritime, og Haraldur Árnason, framkvæmdatjóri Knarr Maritime, brostu breitt þegar tilkynnt var um stofnun Knarr Maritime á sjávarútvegssýningunni í Brussel í dag. Mynd/Aðsend
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra tilkynnti í dag um stofnun nýs markaðsfyrirtækis á sviði skipalausna, Knarr Maritime, á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni, sem nú stendur sem hæst í Brussel. Að hinu nýja fyrirtæki standa íslensku fyrirtækin Skaginn 3X, Nautic ehf., Kælismiðjan Frost ehf., Brimrún ehf., Naust Marine ehf., og Verkfræðistofan Skipatækni ehf. sem öll hafa á undanförnum árum komið að hönnun, þróun, smíði og sölu á búnaði og skipum til veiða og vinnslu á sjávarfangi að því er fram kemur í tilkynningu. Þorgerður Katrín sjávarútvegsráðherra segir afar ánægjulegt að hafa komið að því að ýta þessu verkefni úr vör. Hún segir hugvit og frumkvæði íslenskra hátæknifyrirtæki hafa skipað þeim og sjávarútvegi okkar í fremstu röð og það skref sem stigið var í dag staðfesti það frumkvæði og forystu. Þrátt fyrir að fyrirtækin sex hafi í dag stofnað sameiginlegt markaðsfyrirtæki hafa þau átt í talsverðu samstarfi á undanförnum árum og má þar nefna samstarf við hönnun, smíði og uppsetningu vinnslustöðva innanlands og utan auk þess sem þau taka flest svipaðan þátt í smíði þeirra skuttogara sem hafa verið og eru nú í smíðum fyrir íslensk sjávarútvegfyrirtæki. Starfsemi Knarr Maritime byggir því í raun á áratuga reynslu og þekkingu. „Íslenskur sjávarútvegur og iðnaður hafa ávallt verið í fararbroddi hvað þekkingu og tækni varðar og samstarf þessara fyrirtækja getur styrkt þá stöðu enn frekar“ segir Finnbogi Jónsson, sem er stjórnarformaður hins nýja fyrirtækis. Fyrirtækin sem að Knarr Maritime standa munu hvert um sig koma að hönnun og smíði á afmörkuðum þáttum sem ýmist verða smíðaðir af fyrirtækjunum sjálfum eða undirverktökum þeirra. Smíði aðalvéla og skipsskrokksins sjálfs verður síðan ákveðin í nánu samstarfi við kaupendur skipanna hverju sinni. Þannig verður hægt að bjóða fiskiskip af ýmsum stærðum og gerðum allt eftir óskum hvers kaupanda fyrir sig. „Viðskiptavinir okkar geta á einum stað nálgast allt það besta við fiskveiðar sem íslendingar hafa fram að færa hvort heldur vinnslan fer fram um borð í veiðiskipi eða í landi“ segir Haraldur Árnason, nýráðinn framkvæmdastjóri Knarr Maritime, en hann hefur um áratugaskeið stjórnað ýmsum fyrirtækjum Hampiðjunnar víðs vegar um heim.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira