Lífið

Krakkarnir sem trufluðu pabba í beinni á BBC komnir með sinn eigin þátt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta verður snilld.
Þetta verður snilld.
Það muna eflaust allir systkinunum sem gengu inn á pabba í miðju sjónvarpsviðtali og urðu á einu augabragði heimsfræg.

Atvikið var kostulegt og sást mamman rjúka inn í herbergið, hrifsa í börnin og koma þeim rakleitt út úr herberginu.

Núna eru þessir snillingar komnir með sinn eigin teiknimyndaþátt. Þátturinn fjallar um líf Marion og James Kelly og er framleiddur af Hans House Productions.

Í þáttunum heita börnin Mina og Jack og ferðast þau með föður sínum um allan heim og aðstoða hann úr allskonar vandræðum.

Hér að neðan má sjá brot úr þáttunum og einnig fræga atriðið þegar systkinin trufluðu pabba í beinni á BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×