Handbolti

Berlínarrefirnir upp í 3. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már skoraði tvö mörk.
Bjarki Már skoraði tvö mörk. vísir/afp
Füchse Berlin vann öruggan sigur á Hannover-Burgdorf, 34-27, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Með sigrinum komust Berlínarrefirnir upp í 3. sæti deildarinnar en Kiel getur endurheimt það með sigri á Göppingen seinna í kvöld.

Hannover-Burgdorf er hins vegar í frjálsu falli en þetta var tíunda tap liðsins í röð.

Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Füchse Berlin sem hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum.

Rúnar Kárason komst ekki á blað í liði Hannover-Burgdorf sem er í 10. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×