Erlent

Voru gift í 69 ár og létust með klukkustundar millibili

Atli Ísleifsson skrifar
Teresa og Isaac Vatin.
Teresa og Isaac Vatin. Mynd frá Vatin-fjölskyldunni.
Hjón frá Illinois í Bandaríkjunum sem höfðu verið gift í 69 ár létust um liðna helgi með minna en klukkustundar millibili.

Isaac Vatin, 91 árs hélt í hönd á konu sinnar Teresu, sem var 89 ára gömul, þegar hún andaðist eftir baráttu við Alzheimer sjúkdóminn.

Fjörutíu mínútum síðar var Isaac einnig allur, að því er barnabarn þeirra segir í samtali við fjölmiðla ytra.

Hjónin voru innflytjendur frá Argentínu og höfðu búið í Skokie í Illinois ásamt þremur börnum og barnabörnum um áratuga skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×