Lífið

Samoilova kemur fram á Krímskaga á fyrsta Eurovisionkvöldinu

Atli Ísleifsson skrifar
Julia Samoilova.
Julia Samoilova.
Rússneska söngkonan Julia Samoilova mun koma fram á tónleikum í Sevastopol á Krímskaga þann 9. maí næstkomandi, sama kvöld og fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fer fram í Kíev í Úkraínu.

Til stóð að Samoilova myndi flytja framlag Rússlands í keppninni en henni var neitað um komu til Úkraínu þar sem hún hafði komið fram á tónleikum á Krím árið 2015. Rússland innlimaði Krímskaga ári fyrr. Rússar ákváðu í kjölfar ákvörðunar úkraínskra yfirvalda að sniðganga keppnina í ár.

Úkraína vann óvænt Eurovision í fyrra með flutningi söngkonunnar Jamala á laginu 1944. Lagið fjallar um fjöldafólksflutninga Josef Stalín á Tatörum frá Krímstaga á tímum síðari heimsstyrjaldar.

Að neðan má sjá lag Samoilova  sem upphaflega stóð til að hún myndi flytja í Eurovision í ár. Lagið ber nafnið Flame Is Burning.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×