Fótbolti

Advocaat og Gullit orðaðir við hollenska landsliðið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Advocaat er alla jafna léttur, ljúfur og kátur.
Advocaat er alla jafna léttur, ljúfur og kátur. vísir/getty
Hollenska blaðið De Telegraaf segir í dag að knattspyrnusamband Hollands vilji að Ruud Gullit og Dick Advocaat taki við landsliðinu.

Hollandi gengur enn illa á fótboltavellinum og Danny Blind hætti með það í mars.

Advocaat er að hætta með tyrkneska félagið Fenerbahce í sumar en þessu 69 ára gamli þjálfari hefur áður verið landsliðsþjálfari Hollands. Hann yrði aðalþjálfari.

Hinn 54 ára gamli Gullit myndi þá vera aðstoðarmaður hans. Hollenska sambandið hefur trú á því að þetta par gæti komið liðinu aftur á beinu brautinu.

Holland er í fjórða sæti A-riðils í undankeppni HM 2018. Liðið er með 7 stig eftir fimm leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×