Lífið

Bein útsending: Svala svarar spurningum og kveður þjóðina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svala stígur á sviðið 9. maí og er hún 13. í röðinni.
Svala stígur á sviðið 9. maí og er hún 13. í röðinni.
Brátt heldur Svala Björgvinsdóttir út til Úkraínu þar sem hún mun keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision með laginu Paper.

Svala kemur fram þriðjudaginn 9. maí á fyrra undanúrslitakvöldinu og leggur hópurinn af stað út þann 30. apríl.

Í dag mætir Svala í verslun Vodafone í Kringlunni og situr fyrir svörum „live“ á Facebook. Eftir það tekur hún lagið ásamt hljómsveit, áritar plaköt og gefur kost á myndatöku með gestum fyrir framan verslun Vodafone.

Hægt er að fylgja með beinu útsendingunni hér fyrir neðan.

Dagskráin er eftirfarandi:

17:00  Svala situr fyrir svörum „live“ á Facebook í verslun Vodafone

18:00  Svala tekur lagið í Kringlunni

18:15  Svala áritar plaköt fyrir framan verslun Vodafone og í boði verður að smella mynd af sér með henni






Fleiri fréttir

Sjá meira


×