Viðskipti innlent

Háskólinn á Bifröst selur eignir til að bregðast við fækkun í staðnámi

Birgir Olgeirsson skrifar
Háskólinn á Bifröst.
Háskólinn á Bifröst. Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst ætlar að selja Hótel Bifröst, sem er í eigu skólans, og aðrar húseignir í opnu söluferli.

Hótelið hefur verið í rekstri frá árinu 2013 og því tilheyra 51 herbergi í dag auk veitingasalar í rekstri. Þessu fylgja tvær byggingar með samtals 48 íbúðum.

Þá er einnig til sölu að fjölbýlishús á svæðinu með alls 88 herbergjum. Í boði er að kaupa eignirnar að hluta eða öllu leyti og eru þær verðmetnar á 1,5 til 2,5 milljarða króna eftir því hversu stóran skammt er að ræða.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að eignirnar séu til sölu þar sem fækkun hefur orðið í staðnámi hjá skólanum og því ekki sama þörf og áður fyrir húsnæði á svæðinu. Um áttatíu prósent af nemendum skólans eru í fjarnámi og koma í sérstakar staðarlotur yfir helgi einu sinni í mánuði.

„Nokkur áhugi hefur þegar verið sýndur á eignum skólans og gangi salan upp í samræmi við áætlanir skólans mun það gera okkur kleift að greiða stóran hluta skulda okkar. Það mun hafa gríðarlega jákvæð áhrif á fjárhagsstöðu skólans. Kennslan við Háskólann á Bifröst byggist á fjarnámi en staðnám er einnig í boði. Undanfarin ár hefur staðnemum fækkað og íbúðir og herbergi því verið lítið nýtt. Þess vegna hófum við hótelrekstur árið 2013 sem gekk vel en núna er von okkar að öflugur aðili taki við keflinu og haldi uppbyggingunni áfram svo við getum einbeitt okkur að rekstri skólans,“ segir Vilhjálmur Birgisson, rektor Háskólans á Bifröst, um málið í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×