Íslenski boltinn

Þór/KA vann meistaraefnin í upphafsleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði eina mark leiksins.
Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði eina mark leiksins. vísir/anton
Þór/KA vann 1-0 sigur á Val í Boganum á Akureyri í fyrsta leik tímabilsins í Pepsi-deild kvenna.

Þetta var nokkuð óvæntur sigur hjá Þór/KA sem var spáð 4. sæti deildarinnar. Val var hins vegar spáð Íslandsmeistaratitlinum.

Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði eina mark leiksins á 9. mínútu. Mexíkóska landsliðskonan er að spila sitt annað tímabil fyrir norðan en hún skoraði 12 mörk í 18 deildarleikjum í fyrra.

Þór/KA var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og hafði átt skot í slá áður en Sandra skoraði.

Valskonur bættu leik sinn í seinni hálfleik en það dugði ekki til. Lokatölur 1-0, Þór/KA í vil.

Þetta er öllu betri byrjun hjá Þór/KA en í fyrra þar sem liðið tapaði 4-0 fyrir Stjörnunni í 1. umferðinni.

Upplýsingar um úrslit og gang mála eru fengnar frá fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×