Fótbolti

Þrjú lönd sektuð fyrir hommahatur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Argentínu kunna ekki alltaf að haga sér.
Stuðningsmenn Argentínu kunna ekki alltaf að haga sér. vísir/getty
Brasilía, Argentína og Mexíkó hafa öll verið sektuð af FIFA þar sem stuðningsmenn þjóðanna voru með hommahatur í stúkunni.

Brasilía fékk 3,7 milljón króna sekt en Argentína slapp með sekt upp á 2,1 milljón króna. Mexíkó þurfti aðeins að greiða eina milljón króna.

Haldi áhorfendur áfram með þessa hegðun mega þjóðirnar búast við harðari refsingum.

Nokkrar þjóðir í Evrópu fengu líka vægar sektir fyrir hegðun áhorfenda en það var aðallega fyrir að kveikja á blysum í stúkunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×