Lífið

Scarlett Johansson býður tvífara sínum út að borða í fallegu myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg saga.
Skemmtileg saga.
Leikkonan Scarlett Johansson hefur undanfarna daga fengið gríðarlega margar ábendingar um að það sé til kona sem hafi verið nákvæmlega eins og leikkonan á sínum tíma.

Konana heitir Geraldine Dodd og er í dag 72 ára gömul. Málið vakti fyrst athygli á Reddit þegar barnabarn Dodd deildi mynd af ömmu sinni og sagði að hún hefði verið mjög lík Johansson.

Síðan þá hefur málið ratað alla leið til leikkonunnar sem ákvað að deila myndbandi þar sem hún býður Dodd út að borða.

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×