Lífið

FM95BLÖ á Þjóðhátíð 2017: Tilkynna atriðið með rándýru myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það má búast við miklu fjöri í Herjólfsdalnum.
Það má búast við miklu fjöri í Herjólfsdalnum.
Strákarnir í FM95BLÖ tilkynntu rétt í þessu að þeir munu koma fram á Þjóðhátíð eins og síðastliðin tvö ár.

Drengirnir gerðu allt vitlaust í Herjólfsdalnum á síðasta ári og mældist virkni á jarðskjálftamælum í Vestmannaeyjum þegar þeir stigu á svið.

Í tilefni af því að hópurinn er að fara koma fram á Þjóðhátíð 2017 gáfu þeir út sérstakt myndband í dag til að koma Þjóðhátíðargestum í fíling fyrir sumarið.

Myndbandið er stórskemmtilegt og af dýrarari gerðinni. Strákarnir stíga á sviðið klukkan 23:00 á laugardalskvöldinu um Verslunarmannahelgina. 

Hér að neðan má sjá viðtal við strákana rétt áður en þeir fóru upp á svið í fyrra og svo er þeim fylgt inn á svið. Þarna má sjá glefsur úr nokkrum lögum sem þeir tóku. Einnig hvernig brekkan trylltist þegar Auddi kynnir leynigestinn Aron Can.

Á þessu myndbandi má glöggt sjá stemninguna sem skapaðist þegar atriði FM95BLÖ náði hápunkti, rétt áður en flugeldasýningin var keyrð í gang á síðasta ári.


Tengdar fréttir

Baksviðs með FM95BLÖ: Þegar allt trylltist á Þjóðhátíð

"Við getum orðað það þannig að ef það væri þak á dalnum, þá myndi það rifna af,“ sagði Egill Einarsson rétt áður en hann steig út á svið með strákunum í FM95BLÖ í Herjólfsdal á laugardalskvöld í Vestmannaeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×