Menning

Allt stór verk en þau eru góð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigurður Bjarki Gunnarsson, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og  Una Sveinbjarnardóttir auk Rúnars Óskarssonar sem verður í aðalhlutverki.
Sigurður Bjarki Gunnarsson, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Una Sveinbjarnardóttir auk Rúnars Óskarssonar sem verður í aðalhlutverki.
Síðustu Tíbrártónleikar vetrarins verða á morgun, sunnudag, klukkan 14 í Salnum.  Þá leggur klarínettleikarinn Rúnar Óskarsson í það þrekvirki að flytja öll fjögur verk Johannesar Brahms sem hann samdi fyrir klarínett. Tvær sónötur fyrir klarínett og píanó, eitt tríó fyrir klarínett, píanó og selló og kvintett fyrir klarínett og strengjakvartett.



„Þetta eru allt stór verk en þau eru góð,“ segir Rúnar og nefnir því til sönnunar að hann hafi spilað þau öðru hvoru í allan vetur til undirbúnings tónleikanna og alltaf þótt þau skemmtileg. 

Áður en Brahms samdi verkin í lok nítjándu aldar fyrir klarínettleikarann Richard Mühlfeld, hafði hann tilkynnt að hann væri hættur að semja tónlist, að sögn Rúnars.

„Fyrirmyndir Brahms voru fáar og stórar klarínettsónötur eiginlega ekki til, þannig að hann varð frumkvöðull og það er dásamlegt að honum skyldi takast svona vel upp,“ segir hann og tekur fram að Sigurður I. Snorrason klarínettleikari muni fræða tónleikagesti um tónskáldið og tilurð verkanna.

Rúnar segir klarínettleikara þakkláta fyrir að Brahms náði að kynnast Mühlfeld. „Auðvitað væri rosa gaman ef hann hefði gert konsert fyrir heila hljómsveit og klarínett, svona ef maður vill væla mikið!“ segir hann glaðlega. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×