Enski boltinn

Burnley nánast hólpið eftir fyrsta útisigurinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Barnes skoraði fyrra mark Burnley.
Barnes skoraði fyrra mark Burnley. vísir/getty
Burnley steig stórt skref í áttina að því að bjarga sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni með 0-2 sigri á Crystal Palace á Selhurst Park í dag.

Þetta var fyrsti útisigur Burnley á tímabilinu en hann skilaði liðinu upp í 14. sæti deildarinnar.

Ashley Barnes kom Burnley yfir strax á 7. mínútu. Hann skoraði aftur skömmu síðar en markið var réttilega dæmt af vegna þess að Barnes handlék boltann.

Andre Gray kláraði svo leikinn þegar hann skoraði annað mark Burnley á 85. mínútu. Þetta var níunda mark Grays á tímabilinu.

Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Burnley sem er átta stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Hér fyrir neðan má lesa lýsingu frá gangi mála í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

18:25: Leik lokið! Fyrsti útisigur Burnley á tímabilinu staðreynd. Liðið er svo gott sem hólpið.

18:15: MARK!!! Andre Gray sleppur einn í gegn og þrumar boltanum framhjá Hennessey! Stefnir allt í fyrsta útisigur Burnley á tímabilinu.

17:55: Delaney með gott skot sem Tom Heaton gerir vel í að slá yfir slána.

17:36: Madley flautar seinni hálfleikinn á.

17:21: Robert Madley flautar til hálfleiks. Burnley leiðir 0-1, þökk sé marki Barnes.

17:08: Damian Delaney með skot framhjá úr góðu færi. Hinum megin á Sam Vokes skalla sem Wayne Hennessey ver.

16:46: Barnes skorar aftur en markið er dæmt af vegna hendi.

16:38: MARK!!! Ashley Barnes kemur Burnley yfir, þvert gegn gangi leiksins. Palace hefur byrjað leikinn mun betur en Burnley er komið yfir.

16:30: Það er búið að flauta til leiks á Selhurst Park.

King skorar sigurmark Bournemouth.vísir/getty
15:53: Leik lokið! Það er búið að flauta af á öllum völlum. Sunderland er fallið.

15:49: Allt að gerast! Southampton fær víti gegn Hull. Dusan Tadic fer á punktinn en Eldin Jakupovic ver spyrnu hans! Þetta gæti reynst dýrmætt í fallbaráttunni.

15:47: MARK!!! Joshua King kemur Bournemouth yfir gegn Sunderland sem er núna dauðadæmt. Hinn norski King hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað grimmt.

15:39: Byrjunarliðið hjá Burnley er komið og Jóhann Berg Guðmundsson er því miður ekki í því. Okkar maður er á bekknum.

15:26: Jack Butland hefur verið góður í marki Stoke og átt nokkrar flottar vörslur frá leikmönnum West Ham.

15:12: Það er búið að flauta aftur til leiks á öllum völlum.

14:50: Það er kominn hálfleikur á öllum völlum. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós í fyrri hálfleiknum í leikjunum fjórum en þeim fjölgar vonandi í þeim seinni.

14:44: MARK!!! Loksins, loksins. Jamie Vardy kemur Leicester yfir gegn West Brom með fyrsta marki dagsins. Þetta er þrettánda mark enska landsliðsmannsins í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

14:35: Við bíðum enn eftir fyrsta markinu í leikjum dagsins. Það hlýtur að styttast í það.

Mark Clattenburg dæmir sinn síðasta leik í ensku úrvalsdeildinni í dag.vísir/getty
14:07: Hull-maðurinn Kamil Grosicki með skot í slána á marki Southampton beint úr aukaspyrnu.

14:00: Það er búið á flauta til leiks á Maríuvöllum, Britannia, Ljósvangi og The Hawthornes.

13:24: Eftir stórkostlegt gengi í fyrstu leikjunum undir stjórn Craigs Shakespeare hefur Leicester gefið eftir og ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum. Refirnir eru sex stigum frá fallsæti og ættu því að vera nokkuð öruggir með að spila í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Leicester mætir West Brom á The Hawthornes. Strákarnir hans Tonys Pulis hafa gefið hressilega eftir að undanförnu og tapað fimm af síðustu sjö leikjum sínum.

13:22: Það bendir allt til þess að Sunderland leiki í B-deildinni á næsta tímabili og liðið getur fallið í dag. David Moyes og félagar eru í neðsta sæti deildarinnar með 21 stig, 12 stigum frá öruggu sæti. Sunderland hefur leikið í úrvalsdeildinni frá 2007.

13:20: West Ham og Bournemouth eiga bæði möguleika á að komast upp í 9. sæti deildarinnar. West Ham sækir Stoke heim og Bournemouth mætir botnliði Sunderland á Ljósvangi.

13:18: Hull getur sett Swansea í afar erfiða stöðu með sigri á Southampton. Hull og Swansea eru í 17. og 18. sæti deildarinnar en tveimur stigum munar á liðunum. Swansea mætir Manchester United í hádeginu á morgun.

13:15: Góðan daginn og velkomin til leiks! Það eru fimm leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag og við munum fylgjast með því helsta sem gerist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×