Fótbolti

Hannes hélt hreinu í fjórða sinn í fimm leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes hefur aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu fimm leikjum Randers.
Hannes hefur aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu fimm leikjum Randers. vísir/getty
Íslendingaliðin Randers og Esbjerg gerðu markalaust jafntefli þegar þau mættust í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Eftir erfitt gengi framan af ári hefur Randers bætt í að undanförnu og náð í sjö stig í síðustu fjórum leikjum sínum.

Hannes Þór Halldórsson stóð í marki Randers og hélt hreinu í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum.

Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Randers eru í efsta sæti síns riðils.

Guðlaugur Victor Pálsson lék ekki með Esbjerg vegna meiðsla. Liðið er í neðsta sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×