Erlent

Germanwings-reglan afnumin

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Regla sem komið var á eftir að vél Germanwings var brotlent árið 2015 verður afnumin á næstunni. Hún þykir ekki auka öryggi farþega.
Regla sem komið var á eftir að vél Germanwings var brotlent árið 2015 verður afnumin á næstunni. Hún þykir ekki auka öryggi farþega. Nordicphotos/AFP
Þýsk flugfélög hafa nú ákveðið að afnema reglu um að tveir aðilar þurfi að vera í flugstjórnarklefanum öllum stundum. Reglan var sett á í kjölfar þess að flugmaður Germanwings, Andreas Lubitz, læsti sig inni í flugstjórnarklefa og brotlenti flugvélinni með þeim afleiðingum að 150 fórust. Talið er að Lubitz hafi brotlent vélinni viljandi.

Samtök flugfélaga í Þýskalandi, BDL, tilkynntu um ákvörðunina í gær og mun reglan falla úr gildi þann 1. júní næstkomandi. Samkvæmt samtökunum hafi reglan engin áhrif á öryggi og sé því gagnslaus.

Flugfélagið Eurowings, sem Germanwings rann saman við, er eitt flugfélaganna sem afnemur regluna.

Í tilkynningu BDL segir að hvert og eitt flugfélag hafi metið áhrif reglunnar og þau hafi komist að því að hún væri gagnslaus. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×