Fótbolti

Sverrir Ingi og félagar fallnir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sverrir Ingi hefur spilað 14 deildarleiki fyrir Granada síðan hann kom til félagsins.
Sverrir Ingi hefur spilað 14 deildarleiki fyrir Granada síðan hann kom til félagsins. vísir/getty
Sverrir Ingi Ingason og félagar í Granada féllu í dag niður í spænsku B-deildina eftir 2-1 tap fyrir Real Sociedad á útivelli.

Sverrir Ingi lék allan leikinn í vörn Granada sem hefur tapað fimm leikjum í röð, þar af öllum fjórum leikjunum undir stjórn Tonys Adams.

Sociedad náði forystunni á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Carlos Vela skoraði sitt áttunda mark á tímabilinu.

Kólumbíski framherjinn Adrián Ramos jafnaði metin á 65. mínútu en Juanmi tryggði Sociedad öll stigin þrjú þegar hann skoraði annað mark liðsins sex mínútum fyrir leikslok.

Sverrir Ingi hefur leikið 14 deildarleiki fyrir Granada frá því hann kom til liðsins í janúarglugganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×