Fótbolti

Kristianstads vann fyrsta sigurinn og hélt hreinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sif lék allan leikinn í vörn Kristianstads.
Sif lék allan leikinn í vörn Kristianstads. vísir/epa
Sif Atladóttir stóð vaktina í vörn Kristianstads sem vann 0-3 útisigur á Limhamn Bunkeflo í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þetta var fyrsti sigur Kristianstads á tímabilinu en Sif, Elísabet Gunnarsdóttir og stöllur þeirra eru í 7. sæti deildarinnar.

Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan leikinn í vörn Limhamn Bunkeflo sem er aðeins með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í sænsku deildinni.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn þegar Vålerenga gerði 2-2 jafntefli við Arna-Björnar í norsku úrvalsdeildinni.

Vålerenga lenti 0-2 undir eftir stundarfjórðung en kom til baka og náði í sitt fyrsta stig á tímabilinu. Liðið er í 9. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×