Innlent

Margir fastir í óíbúðarhæfu húsnæði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Kristmann segir suma ekki hafa efni á að fara í framkvæmdir og búi við óviðunandi aðstæður
Kristmann segir suma ekki hafa efni á að fara í framkvæmdir og búi við óviðunandi aðstæður Vísir/skjáskot
Sagt hefur verið frá fimm manna fjölskyldu sem er á götunni þar sem húsið er ónýtt vegna vegna veggjatítlu og myglusvepps - en tryggingar bæta ekki skaðann. Reyndar hefði fjölskyldan getað losnað við veggjatítluna með talsverðum kostnaði og haldið húsinu. En þegar myglusveppur fannst einnig varð ljóst að það borgaði sig ekki.

Verkfræðistofan Efla veitir aðstoð vegna mygluvandamála á heimilum og fyrirtækjum. Gífurleg eftirspurn hefur verið eftir skoðunum síðasta áratug en átta starfsmenn eru í fullu starfi við að kanna og greina myglu.

„Ég hef skoðað ríflega fjögur þúsund heimili á undanförnum sjö til átta árum," segir Kristmann Magnússon, byggingatæknifræðingur hjá Eflu.

Kristmann hefur séð nokkur dæmi um fjölskyldur sem missa allt sitt vegna myglunnar og búa í óíbúðarhæfum húsum.

„Já, því miður. Maður sér þetta oftar en mann langar. Stundum hefur fólk efni á að taka til hendinni og henda því sem er skemmt. En aðrir sitja verr eftir, ná ekki að laga það sem er að og eru mögulega með heilsubresti sem hægt er að tengja við húsnæðið," segir Kristmann.

Mikið hefur verið fjallað um myglu síðustu ár. Kristmann segir vitundarvakningu hafa orðið meðal fólks og að skoðunaraðferðir séu orðnar betri.

„Þetta leynist víðar en okkur grunaði í upphafi. Inni í steypu, inni í múr, þar sem mygla á ekki að þrífast. Því miður nær þetta að vaxa á ótrúlegustu stöðum.“

Er ástandið verra hér á Íslandi en annars staðar?

„Það má deila um það. Við erum þá helst að skoða steypumál. En það er margt sem bendir til að þetta sé ekki bara á íslandi, líka annars staðar í heiminum," segir Kristmann.


Tengdar fréttir

Veggjatítlur fljúga en eru vandlátar

"Veggjatítlur geta flogið. Á heitasta tíma sumars fljúga þær út úr húsum og geta flogið inn í næsta hús þess vegna. Þær þurfa þá sólarhita til þess. Þær væru ekki að fljúga núna til dæmis,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×