Glamour

Bradley Cooper og Irina Shayk orðin foreldrar

Ritstjórn skrifar
Bradley og Irina hafa verið saman frá árinu 2015.
Bradley og Irina hafa verið saman frá árinu 2015. Mynd/Getty
Þau Irina Shayk og Bradley Cooper eignuðust barn fyrir tveimur vikum. Hvorki nafn né kyn barnsins er vitað. Þau hafa ávallt haldið sínu einkalífi útaf fyrir sig frá því að þau byrjuðu saman fyrir tveimur árum. 

Irina sýndi óléttubumbuna sína fyrst þegar hún gekk tískupallinn fyrir Victoria's Secret í nóvember. Eftir það hefur farið afar lítið fyrir parinu. Nú eru þau hins vegar orðin lítil þriggja manna fjölskylda og eflaust gleðitímar framundan þar á bæ. 






×