Innlent

Íbúðarleit Jóns Þórs hafin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Finnst rétt að víkja fyrir annarri fjölskyldu sem er ekki í jafn góðri stöðu og okkar fjölskylda, segir Jón Þór.
Finnst rétt að víkja fyrir annarri fjölskyldu sem er ekki í jafn góðri stöðu og okkar fjölskylda, segir Jón Þór. vísir/vilhelm
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hefur leitað til vina sinna og vandamanna á Facebook í von um aðstoð í leit að nýrri íbúð. Slétt vika er síðan Jón Þór ákvað að flytja úr íbúð fjölskyldunnar á Stúdentagörðunum eftir að Fréttablaðið fjallaði um þingmanninn á Görðunum.

Greinilegt er að Jón Þór er opinn fyrir öllu, hvort sem er í höfuðborginni eða nágrenni hennar. 

„Erum reyklaus og róleg með tvö börn, sjö og fjögurra ára.“

Jón Þór er með 1,26 milljónir króna í mánaðarlaun sem þingmaður og þriðji varaforseti Alþingis. Hann sagði að óeðlilegt væri ef starf hans myndi skerða rétt maka síns til búsetu á stúdentagörðunum.

„Það er konan mín sem leigir íbúðina ekki ég. Það er hluti af hennar öryggi að hafa stúdentaíbúð og ekki hægt að spyrða það við manninn hennar,“ sagði Jón Þór.

Síðar um daginn hafði Jón Þór skipt um skoðun. Hann teldi rétt að víkja fyrir annarri fjölskyldu sem væri ekki í jafn góðri stöðu og hans fjölskylda.

„Við vörum við því að slíkt fordæmi verði að reglu því ekki eru allir í sambúð í eins öruggu sambandi eða með sameiginlegan fjárhag. Fólk verður að geta verið sjálfstætt þótt það sé í sambúð.“

Stúdentaíbúðir eru eftirsóttar og geta umsækjendur þurft að bíða nokkra stund eftir því að fá íbúð.vísir/ernir
Jón Þór náði kjöri sem þingmaður í alþingiskosningunum 2013 en sagði af sér þingmennsku þegar kjörtímabilið var hálfnað. Eftir að hann hætti á þingi komst kona hans inn á stúdentagarða en hún stundar nám við Háskóla Íslands.

Hann segir að almennt réttmætt sé að fólk fái þrjá mánuði til að skipta um búsetu og að nú líði bráðum þrír mánuðir frá því að ríkisstjórnin var mynduð og ljóst að hann yrði áfram í þingstarfinu. Þá tekur hann fram að búið sé að afnema að tekjur maka skerði lífeyri eldri borga frá almannatryggingum. Það sé gott réttindamál en að enn búi eldri borgarar og öryrkjar við tekjuskerðingar vegna sambúðar.

„Þessar skerðingar þarf að afnema. Ég mun áfram vinna með Félagi Eldriborgara í Reykjavík í þessum málum.“


Tengdar fréttir

Þingmaður með meira en milljón á mánuði en býr á Görðunum

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, býr á Stúdentagörðum en maki hans stundar nám við Háskóla Íslands. Mánaðarlaun hans eru hátt í 1,3 milljónir króna. Staða maka hefur ekki áhrif á umsókn stúdents til búsetu á Görðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×