Körfubolti

Kanínurnar fóru ofan í holuna í seinni hálfleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnar Guðjónsson er aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Svendborg.
Arnar Guðjónsson er aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og þjálfari Svendborg. vísir/ernir
Svendborg Rabbits undir stjórn aðstoðarlandsliðsþjálfarans Arnars Guðjónssonar er lent 2-0 undir í rimmu sinni gegn stórliði Bakken Bears í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Kanínurnar voru hoppandi flottar í fyrri hálfleik og voru með forskotið eftir 20 mínútur, 37-36. Í seinni hálfleik fóru þær ofan í holuna er Birnirnir tóku völdin á vellinum og unnu sannfærandi sigur á endanum, 85-70.

Bakken Bears vann fyrsta leikinn örugglega á heimavelli, 95-79, en liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar á eftir Horsens. Bakken-liðið vann silfur í fyrra og ætlar sér að endurheimta titilinn.

Íslenski landsliðsmaðurinn Axel Kárason skoraði átta stig fyrir Svendborg auk þess sem hann tók átta fráköst á þeim 23 mínútum sem hann spilaði.

Liðin mætast næst á heimavelli Bakken Bears en sigur þar kemur Bakken-liðinu í úrslitaeinvígið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×