Glamour

Lúxus markaðurinn tekur við sér

Ritstjórn skrifar
Rekstur Hermés hefur gengið vonum framar á seinasta ári.
Rekstur Hermés hefur gengið vonum framar á seinasta ári. Mynd/Getty
Eftir nokkurra ára baráttu í lúxus markaðinum hafa stærstu fyrirtækin loksins tilkynnt um sölutölur sem hafa farið framúr væntingum. Kering, sem á meðal annars Gucci, LVMH, sem á meðal annars Louis Vuitton og svo Hermés hafa greint frá því að hagnaður fyrirtækjana hafi farið framúr björtustu vonum á fyrsta ársfjórðungi 2017. 

Seinustu ár hafa verið erfið fyrir slík fyrirtæki. Mikið hefur verið einblínt á að koma niður fótum í Kína en svo virðist sem viðskiptavinir þar hafi lítinn áhuga á að versla þar í landi. 

Þegar markaðirnir í Frakklandi lokuðu í gær tilkynnti LVMH að hagnaður fyrirtækisins hafi aukist um 15% á milli ára. Sömuleiðis tilkynntu Kering og Hermés að reksturinn væri loksins á góðri leið. 

Samkvæmt tilkynningu frá LVMH segir að betra rekstrarumhverfi og aukinn áhugi viðskiptavina á lúxus varningi sé að skila sér en að framtíðin væri þó enn óljós. 






×