Formúla 1

Raikkonen lofar bótum og betrun

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kimi Raikkonen á blaðamannafundi fyrir kínverska kappaksturinn.
Kimi Raikkonen á blaðamannafundi fyrir kínverska kappaksturinn. Vísir/Getty
Kimi Raikkonen segir að lausnin sé fundin við „lélegri“ byrjun hans á tímabilinu. Ferrari kom vel undan vetri en Raikkonen virtist ekki hafa gert það sama.

Liðsfélagi Raikkonen, Sebastian Vettel, deilir fyrsta sætinu í heimsmeistarakeppni ökumanna með Lewis Hamilton. Vettel vann fyrstu keppnina og varð annar í annarri keppninni. Raikkonen mistókst í báðum keppnum að komast á verðlaunapall.

Forseti Ferrari hvatti til þess að málið yrði rætt innan liðsins. Raikkonen hefur viðurkennt að hann sé ósáttur við upphaf tímabilsins.

„Það er alltaf sárt að ná ekki góðum úrslitum,“ sagði Finninn sem varð fjórði í Ástralíu og fimmti í Kína.

„Við þurfum að fara að sækja fleiri stig eg við ætlum að halda okkur í baráttunni, þetta verður þó langt ár,“ bætti Raikkonen við.

„Við þurfum að laga viss atriði. Þetta er á réttri leið, en við urfum að ná betri úrslitum og það getum við með betri upstillingu, og ég held við vitum hvað við viljum bæta,“ sagði Raikkonen að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Kveikt undir titilbaráttunni í Kína

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í kínverska kappakstrinum. Hann jafnaði þar með Sebastian Vettel að stigum í heimsmeistarakeppni ökumanna og Mercedes tók forystuna í heimsmeistarakeppni bílasmiða með eins stigs forskot á Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×