Körfubolti

Guðni forseti: Ég mun gera mitt allra besta til að komast á Eurobasket í Finnlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Forseti Íslands, Herra Guðni Th. Jóhannesson, með Loga Gunnarssyni og Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ.
Forseti Íslands, Herra Guðni Th. Jóhannesson, með Loga Gunnarssyni og Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ. Mynd/FIBA
Margir Íslendingar hafa keypt sér miða á úrslitakeppni Evrópumótsins í körfubolta en riðill Íslands á Eurobasket 2017 fer fram í Finnlandi.

Evrópubikarinn kom í heimsókn til Íslands um síðustu helgi og heimasíða FIBA hefur tekið saman frétt um heimsóknina þar sem er viðtal við forseta Íslands, Herra Guðna Th. Jóhannesson, sem tók meðal annars á móti bikarnum á Bessastöðum.

Forsetinn lofaði svo gott sem í viðtali við FIBA-síðuna að láta sjá sig á Eurobasket mótinu í september en hann var á leikjum íslenska handboltalandsliðsins á HM í Frakklandi í janúar.

„Ég mun gera mitt allra besta til að komast á Eurobasket í Finnlandi og ég veit að það eru þúsundir Íslendinga á leiðinni þangað til að sjá íslenska liðið spila,“ er haft eftir Guðna Th. Jóhannessyni á heimasíðu FIBA.

„Okkar reynsla af Berlín [Eurobasket 2015] var mjög góð. Landsliðið okkar gerði okkur stolt. Úrslitin drógu ekki úr brennandi áhuga okkar á liðinu. Við erum vanalega minnsta þjóðin í svona úrslitum stórmóts hvort sem það er körfubolti eða aðrar íþróttir,“ sagði Guðni og bætti við:

„Þetta er því alltaf erfitt verkefni fyrir okkar lið en við erum stolt af því að sjá alla okkar leikmenn gera sitt besta,“ sagði Guðni.

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, hrósaði forsetanum fyrir íþróttaáhugann. „Það er mjög gott fyrir okkur að vera með forseta eins og herra Jóhannesson sem er sannur íþróttaáhugamaður,“ sagði Hannes við fréttaritara FIBA.

Með í för var einnig landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson sem er reyndasti leikmaður íslenska körfuboltalandsliðsins í dag. „Þegar ég byrjaði í landsliðinu fyrir sautján árum þá var það aldrei möguleiki fyrir okkur að spila á Eurobasket. Það var ekki einu sinni í umræðunni en núna eru við að fara á annað Evrópumótið í röð,“ sagði Logi.

Ísland var annar viðkomustaður bikarsins en frá Íslandi fór hann til Svartfjallalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×