Formúla 1

Wehrlein með í Barein

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Pascal Wehrlein á æfingum fyrir tímabilið. Þar fann hann að eigin sögn fyrst að hann væri ekki með úthald í heila keppni.
Pascal Wehrlein á æfingum fyrir tímabilið. Þar fann hann að eigin sögn fyrst að hann væri ekki með úthald í heila keppni. Vísir/Getty
Pascal Wehrlein, ökumaður Sauber liðsins í Formúlu 1 snýr aftur til keppni í Barein. Hann missti af fyrstu tveimur keppnum ársins.

Wehrlein missti af ástralska kappakstrinum ásamt þeim kínverska vegna þess að hann hafði ekki náð að styrkja sig nógu mikið fyrir tímabilið.

Wehrlein gat ekki æft í nokkrar vikur eftir að hafa velt kappakstursbíl sínum í keppni meistaranna í byrjun árs. Við veltuna varð Wehrlein fyrir meiðslum í baki og gat þess vegna ekki æft.

„Við ákváðum að gefa honum 10 daga til að æfa almennilega til að komast í það form sem hann þarf að vera í til að aka þessum bíl,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í samtali við RTL Sport.

Wehrlein er samningsbundinn Mercedes en á einskonar láni hjá Sauber, til að safna reynslu.

Antonio Giovinazzi ók Sauber bíl Wehrlein í tveimur fyrstu keppnum ársins. Eftir fyrri keppnina var talið mögulegt að hann væri jafnvel nógu góður til að ógna sæti Wehrlein til frambúðar. Eftir að hafa tvisvar klessukeyrt bílinn í Kína er líklegt að ógnin sé liðin hjá.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Kveikt undir titilbaráttunni í Kína

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í kínverska kappakstrinum. Hann jafnaði þar með Sebastian Vettel að stigum í heimsmeistarakeppni ökumanna og Mercedes tók forystuna í heimsmeistarakeppni bílasmiða með eins stigs forskot á Ferrari.

Wehrlein ekki með í Kína

Pascal Wehrlein, ökumaður Sauber liðsins í Formúlu 1, verður ekki með í kínverska kappakstrinum um komandi helgi. Antonio Giovinazzi fær því annað tækifæri eftir frábæra fumraun í Ástralíu.

Bílskúrinn: Ágætis byrjun í Ástralíu

Formúlu 1 tímabilið hófst á nýjan leik í Ástralíu um helgina. Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark í spennandi keppni sem lofar góðu fyrir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×