Viðskipti innlent

Virðingarvert en mögulega óheppilegt að fyrirtæki skaffi starfsfólki húsnæði

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Það vantar 9.000 íbúðir á næstu þremur árum hér á landi til þess að mæta eftirspurninni á fasteignamarkaði.
Það vantar 9.000 íbúðir á næstu þremur árum hér á landi til þess að mæta eftirspurninni á fasteignamarkaði. vísir/eyþór
Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, segir það virðingarvert að fyrirtæki reyni að bregðast við erfiðri húsnæðisstöðu starfsfólks síns og skaffi því húsnæði. Starfsfólk geti hins vegar á sama tíma staðið hallari fæti gagnvart vinnuveitanda sínum.

„Það má segja að það sé skiljanlegt að fyrirtæki reyni að bregðast við erfiðri húsnæðisstöðu og virðingarvert útaf fyrir sig að þau skili láta sig það varða. En ég myndi kannski almennt telja að þetta væri ekki endilega heppilegasta leiðin að starfsfólk sé háð atvinnurekandanum um húsnæði,“ segir Henný. Það geti komið fólki í erfiða stöðu og því heillavænlegast að stjórnvöld tækju þessi mál í sínar hendur.

Henny Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ.
Verslunin Ikea og Bláa lónið eru á meðal fyrirtækja sem hyggjast reisa fjölbýlishús til þess að tryggja starfsfólki sínu íbúðir, þó það sé ekki nýtt að fyrirtæki fari leiðir sem þessar. Aðspurð segir Henný þetta geta þýtt að starfsfólk standi höllum fæti gagnvart vinnuveitanda sínum.

„Auðvitað getur sú staða komið upp. Þú ert bæði orðinn háður atvinnurekandanum um afkomu og húsnæði. Þannig að auðvitað getur þetta sett starfsfólk í erfiða stöðu, alveg klárlega. Almennt er þetta ekki heppilegasta leiðin þó maður skilji vel að menn skuli reyna að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin núna og er erfið fyrir marga,“ segir hún.

Þá segir hún mál sem þessi reglulega koma á borð sambandsins.

„Við vitum til þess að okkar stéttarfélög fái svona mál inn á borð til sín. Við þekkjum það í gegnum tíðina að atvinnurekendur útvegi starfsfólki húsnæði en frekar hefur það verið hjá starfsfólki í tímabundnum störfum. Og auðvitað hefur þetta skapað vanda og þetta eru mál sem reglulega koma inn á borð til okkar stéttarfélaga og þau munu að sjálfsögðu fylgjast með þessu áfram.“


Tengdar fréttir

Framkvæmdastjóri IKEA: „Þetta á ekki að vera einhvers konar gettóblokk“

Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir að bygging fjölbýlishúss sem fyrirtækið hyggst reisa fyrir starfsmenn sína hefjist í þessum mánuði. Ekki hefur verið ákveðið hvaða skilyrði þeir sem flytja inn í íbúðirnar þurfi að uppfylla til þess að geta leigt þær eða með hvaða hætti þeim verður úthlutað en Þórarinn segist telja að það verði mikil eftirspurn eftir því að búa í húsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×