Eigendur Brims ætla að leita til dómstóla vegna Ufsabergsdeilunnar Haraldur Guðmundsson skrifar 13. apríl 2017 07:00 Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og annar eigenda Brims hf. Mynd/Brim
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir sjávarútvegsfyrirtækið ætla að leita til dómstóla til að fá hnekkt niðurstöðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um að hafna beiðni um skipan rannsóknarmanna svo rannsaka mætti tiltekna þætti í starfsemi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum (VSV) og meðferð eigin fjár í tengslum við samruna VSV og útgerðarinnar Ufsabergs sem samþykkt var í október 2014. Fjallað var um nýjustu deilu eigenda Brims annars vegar og meirihlutaeigenda VSV hins vegar í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, í gær. Lýsti Guðmundur þar undrun sinni á niðurstöðunni, sem ráðuneytið sendi forsvarsmönnum Brims og VSV í síðustu viku, og sagði það umhugsunarefni hvort minnihlutavernd væri enn við lýði í hlutafélögum hér á landi. Brim, sem er í eigu Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, á 33 prósenta hlut í VSV en átök bræðranna og meirihlutans í Eyjum eiga sér um tíu ára sögu. Halda bræðurnir því fram að raunverulegur tilgangur samruna VSV og Ufsabergs, sem Hæstiréttur samþykkti í júní í fyrra, hafi verið að þynna út hlutafjáreign og völd minnihlutaeigenda VSV. „Upphaf málsins má rekja til ársins 2011, þegar meirihluti eigenda VSV kom því til leiðar að þynna út eignarhlut aðila tengdra Brimi hf. með því að virkja atkvæðarétt eigin bréfa VSV. […] Með því móti tókst meirihlutanum í krafti leynilegs hluthafasamkomulags að þvinga fram aukinn meirihluta, eða 67% atkvæðavægi sem þurfti til að samþykkja samruna VSV og Ufsabergs útgerðar ehf. Slíkur meirihluti var ekki til staðar fyrir sölu eiginbréfa VSV til aðila innan hins leynilega hluthafasamkomulags,“ segir í tilkynningu sem Guðmundur sendi fjölmiðlum í gær.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira